851HELLA!!

-851-

11.04.2009 21:14:59 / atli

R.I.P.




Jæja strákar þá er komið að því...við verðum að horfast í augu við það...... síðan er dauð :cry: en við skulum reyna að horfa ekki bara á það slæma við þessa vá frétt... lítum frekar á þetta sem ástæðu til þess að detta í það. þess vegna ætla ég að halda erfidrykkju einhvertímann í maí... við skulum hittast og grilla og fá okkur svo örlítið öl...

Kveðja ölvir módel;)

hittumst á góð vina fundi
og verður allir léttir í lundi
verðum með góða skapið og vín
og reynum að drekka eins og svín.....
                                          ölvir

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.10.2008 17:59:03 / atli

Gaman gaman

Ef það fer einhver enþá inn á þessa síðu þá er geggt gaman að lesa gömlu bloggin ég skemti mér allavega við að lesa mínar gömlu pælingar.
OOOOg svo var ég að spá í skeljabrekku partíi næstu helgi.. þeir sem sjá sér fært að mæta eru vinsamlegast beðnir að hringja í mig eða senda SMS í síma 848-3771 ég á líka eftir að senda SMS boð til fólks þar sem ég treysti á að það eiga bara svona tveir eftir að sjá þetta blogg..

samt í alvöru þið verðið að lesa gömlu bloggin þau eru alveg tú dæ for.. og furðulegt hvað ég var freðinn og allt sem ég skrifaði var bulledíbull.

Kv. Atli Fannarnarson

ég var líka orðinn þreyttur á þessu pókerbloggi sem tekur alltaf á móti mér þegar ég opna netið þannig núna er komið nýtt




» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 18:16:10 / Módelið

Er það Póker?

Hvenær... Næsta miðvikudag

Kl. 19:00

Hvar... ? Í bílskúrnum í Þjórsártúni

Hversu mikið... 1000 á kjaft

Hverjir... 851, hjásvæfur og útvaldir

Endilega láta vita hverjir mæta :!:

 

Ölli Love8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 23:51:24 / Bæjarinn

Jólagjafir

Jólin nálgast og þá kemur að aðal vandamáli ársins....jólagjafirnar!

Hvað mig varðar þá hef ég aldrei átt jafn erfitt með hvað ég á að kaupa.  Þá fer maður að hugsa, hvers vegna er maður að leggja allt þetta erfiði á sig?  Finna hina ,,fullkomnu" gjöf fyrir sína nánustu.  Eru gjafirnar í raun ekki bara væntumþykja í kassa?  Hvers vegna þurfum við þá að eiða aleigunni í þessa væntumþykju? Eiða allt of miklum tíma í að finna þessa gjöf sem í raun skiptir svo litlu?  Væntumþykjan er jú alltaf til staðar.  Er það ekki hugurinn sem skiptir máli, innihaldið er bara bónus? 

Málið er hins vegar að þessi bónus skiptir okkur máli.  Ég er ekki að segja að það skipti öllu máli, en ef þú gæfi kærustunni þinni ljótan blómavasa í jólagjöf, yrði hún ánægð?  Held nú ekki.  Jólagjöfin þarf að vera persónuleg, flott, hjá sumum jafnvel rosalega dýr, svo ástvinur manns verði ánægður.  Það kemur væntumþykju ekkert við, fólk ætlast bara til að fá flottar gjafir. 

Eða hvað?


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 19:10:06 / Bæjarinn

Lífið i kassanum

Lífið í kassanum 

 

Fyrir framan sjónvarpsskjáinn,

         þar gerist lífið.

Miklir hugvitsmenn hafa gert mér kleift að upplifa lífið

         í gegnum lítinn kassa.

Þessum litla kassa,

sem situr fram í stofu, 

er hægt að kveikja og slökkva á

         ef ég skildi verða leiður á lífinu.

Nú bíð ég bara eftir því að þeir finni upp kassa fyrir mig

svo ég geti byrjað að lifa því.


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 23:07:16 / Bæjarinn

Ljóð

                                    Blindur fær sýn 

Ég opna augun til hálfs

og arga framan í ókunnug andlit,

sem keppast við að hræða mig

   með ýmsum grettum og óhljóðum,

en þau haggast ekki.

 

Þess í stað fangelsa þau mig í 18. ár

á vígvelli martraðanna, sem þau kalla heimili.

Þar til loks, ég slepp frá þeim

   Og út í hinn frjálsa og fallega heim

 

Augun mín opnast til fulls

og heimurinn er ekki frjáls

   með sínum lögum og reglum

né er hann fallegur

   mengaður, skítugur og kaldur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 12:26:35 / atli

!

 

Kv. Atli Fannarnarson 


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 22:33:22 / Bæjarinn

Lifir hún enn?

Já, hún lifir enn. Af hverju blogg?  Jú, hann Ölvir okkar á 18 ára afmæli á morgun og í tilefni að því ætlar hann að halda smá afmælisteiti í heimahúsum föstudaginn 29. júní árið 2007 klukkan 10-framánótt.  Hef þú hefur fengið boðskort, sms eða munnlegt boð þá skaltu mæta með brennivín og pakka og fjölmenna við að gera daginn sem bestan fyrir kappann. 

Annars er planið fyrir helginna að skella sér í sumarbústað rétt hjá skarði og hafa það sem allra best..grilla foland og lambalæri með öllu tilheirandi, heitur pottur, spil og nóg, nóg af djúsi:)...

Hvað er planið fyrir helgina??


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 22:44:19 / Bæjarinn

,,Hómurinn hann heillar en"

,,Hólmurinn hann heillar enn...." segir í gömlum slagara og örugglega eina lagið sem inniheldur nafnið Bæring í textanum, svo flott lag;)

Þannig er mál með vexti að ég er staddur í Stykkishólmi á ættarmóti, og stefnan er tekin á ball í kvöld á fimm fiskum.  Fyri það skal dreipað á víski í klaka og slappað af eftir laaaaangan dag.  

Svo fer ég út ááá þriðjudaginn, réttarasagt kl. hálf 8 um morguninn, og verð í 2 vikur:D.... sandur og sól ú hálfan mánuð takk fyrir mig:D..

 

Þangað til næst;)


» 15 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 17:14:46 / atli

sumarpartý?

 
ekkert partý
 
Hver vill partý hjá mér næstu helgi?.. föstudag eða laugardag það fer eftir atkvæðum. Endilega látið vita og það væri gott að koma með sæng og kodda og ef það verðu gott veður þá endilega mæta snemma og þá verður þetta bara svona sumargarðagrillpartý en þá þarf líka að koma með etthvað að grilla ef þið eruð fyrir það :D
Annars er allt gott að fétta af mér hress og kátur búinn í skólanum og að fara að vinna á hellu sem varaflokkstjóri eða eitthvað, bara svona bæjarstarfsmaður og þar ætla ég að verða ofur tanaður jé beibí þetta verður örugglega skemtilegt sumar.
ég nenni ekki að gera meira.. ég er svo mikill gæða bloggari og þetta svo mikil gæða bloggsíða en hún fær smá upplífgun í sumar.. bæ:D
Kv. Atli Fannarnarson

» 9 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 15:56:01 / Bæjarinn

Óvissuferð

Í gær var farið í óvissuferð ungra Sjálfstæðismanna á Suðurlandi...frítt föruneyti lagði af stað frá Tryggvaskála á selfossi og ferðinni var heitið í eitthvað afþreyingarhús í Þorlákshöfn, þar sem farið var í ratleik.  Eftir 3 þrautir var lið eitt, sem skipað var Jakobi, Steinunni, Önnu Stefaníu, Vali og Einari(held ég), með 2 stig en mitt lið( ég, Hólmfríður, Andrés, Billi Magg og Hildur) vorum með 0 stig.  Þá var komið að spuna, þar sem við áttum að búa til ævintýri.  Billi var sögumaðurinn.  Hómfríður var prinnsessa uppí turni, sem Andrés túlkaði af stakri snild.  Fósturmamma hennar (Hlidur) hafði lokað hana uppí turninum vegna þess að prinsessan hafði riðið pabba sínum:S... allavega þá var hún þarna uppá andrési og ég kom ríðandi inn á hesti, stíng stjúpuna ítrekað í magan og sparka í hausinn á henni, reisi hana við og sting hana aðeins meira og bjarga svo prinsessunni:)...svo riðum við í burtu á hvíta fáknum út í sólarlagið:)...svaka fínt ævintíri:)..og við unnum svo staðan var jöfn, 2-2:)

Svo var farið á selfoss aftur í pizzuveislu, þambaður meiri bjór, klárað úr ópalflöskunni og svo var farið í heimsókn til Kjartans Ólafssonar, sem kepptist við að hella í okkur áfengi frá hinum og þessum löndum...í bland við stjórnmálaumræður. 

Svo var farið í eggjabú og fengið sér egg, uppá þykuna daginn eftir...alveg stórgott:D...

Aftur var haldið í Tryggvaskála þar sem party-ið hélt áfram þangað til tími þótti til kominn að kíkja á pakkhúsið...ég sat hjá og skellti mér til Söru þar sem ég fékk að kúra hjá Ölla restina af nóttunni..very nice;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 18:08:43 / Bæjarinn

Helgi

\"\"

 Partý partý???

Heitir þarna;)...er þetta bara ég eða er einhvað á mili Gísla og Lárusar þarna??

Hvað á að gera um helgina?....einhvað í líkingu við þetta og ég er inn;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 19:17:22 / Bæjarinn

Sumardagurinn fyrsti

Gleeeðilegt sumar!!

Sumarhugleiðingar.

Hvað ef sumarið væri humarsúpa?

Höfundur: Lárus Jóhann

Jebb...lárus gerðist listamaður í tilefni sumarsins...komst nefnilega í svaðalegt sumarskap þegar hann vaknaði og erum við búnnir að vera úti í fótbolta í allan dag:)...en hafið það sem allra best elskurnar;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 19:48:27 / Bæjarinn

BaLl!

Á morgun er ball á hótel selfossi, 18 ára inn.  Auglýsi hér með eftir samfylgdarmönnum!!!  Hvað er betra en að smella sér á eitt stykki ball, hella sig hellaðann og mæta svo í víðavangshlaup daginn eftir, ég bara spyr;)...frábær leið til að losna við þynkunna:D...

Annars var síðasta helgi mjög vel hepnuð, allt gekk stórslysalaust fyrir sig..svo til:)...verðum endilega að endurtaka leikinn sem fyrst:)

Læt þetta duga í bili...

Kv. Balli xxxxxx!

P.s. vitiði hvort Gunnar hafi fengið númerið hjá félaganum sem var að snara hann á ballinu???:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 00:35:37 / Bæjarinn

Söngvakeppni framhaldsskólanna

Jebb...skólinn byrjar á miðvikudaginn, einn dagur eftir af fríinu...hvað þíðir það gott fólk???  Þíðir það að skólinn=heimavinna=leiðindi sé það eina sem koma skal???  Svarið er nei ágætu lesendur!  Við erum að tala um Söngvakeppni framhaldsskólanna næstu helgi í höfuðborð Norðurlands, Akureyri!  Við leigðum 10 saman íbúð, mikið fjör og mikið gaman:)

Þorir einhver í kapp??

 

Mér er þó spurn...þarf þessi ágæti drengur ekki að fara að smella í einsog eitt alvöru Valhallar-party??  Persónulega þá klæjar mig miiiiikið í fyngurnar fyrir einu slíku....en það er bara ég;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13